32C Dabbi T, Emmsjé Gauti og Nagmús (Magsie) koma fram á Sódómu í kvöld.
32C Dabbi T, Emmsjé Gauti og Nagmús (Magsie) koma fram á Sódómu í kvöld.
HIPPHOPP-tónleikaveisla fer fram á Sódómu Reykjavík í kvöld.
HIPPHOPP-tónleikaveisla fer fram á Sódómu Reykjavík í kvöld. Veislan er í boði TFA (Tími fyrir aðgerðir) en samtökin, sem nú hafa verið gerð að einkahlutafélagi, hafa starfað í rúman áratug og reglulega haldið viðburði tengda hipphopptónlistinni og lífsstílnum sem hipphoppinu fylgir. Dyr Sódómu verða opnaðar klukkan 22 og fram koma Forgotten Lores, 32C, S. Creezy, G Maris og Jigz en þar er um að ræða Daníel Hjaltason knattspyrnumann sem kemur nú fram í fyrsta skipti. Leynigestur er DJ Kocoon. Þá verður hipphoppverslun á staðnum með tónlist og annan varning til sölu.