Ævintýr? Skjaldarmerki Kevidíu.
Ævintýr? Skjaldarmerki Kevidíu.
MIKIÐ verður um að vera í Kaffistofu eða nemendagalleríi myndlistarnema við Listaháskóla Íslands í kvöld þegar listnemar stofna fríríkið Kevidíu sem opnar dyr sínar aðeins þetta eina kvöld.

MIKIÐ verður um að vera í Kaffistofu eða nemendagalleríi myndlistarnema við Listaháskóla Íslands í kvöld þegar listnemar stofna fríríkið Kevidíu sem opnar dyr sínar aðeins þetta eina kvöld. Í Kevidíu lifa allir sem kóngar, þar ráða allir jafn miklu og gleðin er alltaf við völd. Í Kevidíu er ekki bara nammidagur á laugardögum og þar er ávallt gott veður. Allir þekktir gjaldmiðlar eru verðlausir í Kevidíu en með því að gefa af sjálfum sér má græða ýmislegt.

Viðburðurinn hefst stundvíslega kl. 20 á Hverfisgötu 42b. Allir eru velkomnir og allir geta tekið þátt í því að móta ríkið.