Eftir Andra Karl andri@mbl.is HANNES Sigmarsson, yfirlæknir við Heilsugæslu Fjarðabyggðar, hefur enn ekki aftur snúið til vinnu þrátt fyrir að embætti ríkissaksóknara hafi ákveðið að vísa kæru Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá.

Eftir Andra Karl

andri@mbl.is

HANNES Sigmarsson, yfirlæknir við Heilsugæslu Fjarðabyggðar, hefur enn ekki aftur snúið til vinnu þrátt fyrir að embætti ríkissaksóknara hafi ákveðið að vísa kæru Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá. Endurkoma hans hefur frestast þar sem Ríkisendurskoðun tók nýverið ákvörðun um að hefja rannsókn á málefnum læknisins auk þess sem embætti landlæknis hefur ekki lokið rannsókn á faglegum þáttum verka hans.

Hannes sem var grunaður um fjárdrátt í starfi nýtur mikils stuðnings og nýverið voru stofnuð Hollvinasamtök heilsugæslunnar í Fjarðabyggð. Um 90 manns eru í samtökunum sem m.a. vinna að því að standa vörð um heilsugæsluna, starfsemi hennar og starfsfólk.

Á sjálfur sæti í stjórninni

Á stofnfundinum síðastliðinn sunnudag komu málefni Hannesar, sem á reyndar sæti í stjórn samtakanna, til umræðu. Í fundargerð segir svo: „Fundurinn var spennuþrunginn og það brann mjög á fólki að Hannes Sigmarsson læknir byrjaði störf sem fyrst. Einar Rafn Haraldsson [forstjóri HSA] vildi ekki svara ítrekuðum spurningum þess efnis hvenær eða hvort Hannes kæmi aftur til starfa. [...] Greinilegt var af viðbrögðum Einars Rafns, að hann vildi ekki Hannes aftur til starfa.“

Einar Rafn sagði í samtali við Morgunblaðið að engin persónuleg óvild lægi þar að baki. Hann hefði á fundinum skýrt afstöðu stofnunarinnar og aðdraganda málsins. Grunur hefði leikið á að Hannes hefði dregið sér fé með því að ofreikna sér laun. Mál hans væru ennfremur enn til rannsóknar og á meðan svo væri, hæfi hann ekki störf að nýju.

Í hnotskurn
» Hafin hefur verið undirskriftasöfnun á Eskifirði þar sem skorað er á yfirstjórn HSA að segja af sér vegna máls Hannesar.
» Hannes hefur starfað sem læknir á Austurlandi í tæpa tvo áratugi.