Glæsifley Nýja varðskipið var sjósett í Chile í fyrradag og gefið nafnið Þór. Það er afar fullkomið og hefur smíðin vakið athygli víða um heim.
Glæsifley Nýja varðskipið var sjósett í Chile í fyrradag og gefið nafnið Þór. Það er afar fullkomið og hefur smíðin vakið athygli víða um heim. — Ljósmynd/Landhelgisgæslan
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is VARÐSKIPIÐ Þór verður væntanlega afhent í mars 2010. Ný Dash-8-flugvél Landhelgisgæslunnar verður afhent 27. júní nk. Landhelgisgæslan hefur þurft að gæta mikils aðhalds í rekstri.

Eftir Guðna Einarsson

gudni@mbl.is

VARÐSKIPIÐ Þór verður væntanlega afhent í mars 2010. Ný Dash-8-flugvél Landhelgisgæslunnar verður afhent 27. júní nk. Landhelgisgæslan hefur þurft að gæta mikils aðhalds í rekstri. Dregið var úr úthaldi varðskipanna og nýverið var þremur þyrluflugmönnum sagt upp. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, var því spurður hvort búið væri að tryggja rekstur nýja varðskipsins.

„Fjárlög ársins 2010 eru ekki tilbúin þannig að við vitum ekki hvernig því verður háttað. Við reiknum samt fastlega með að skipið verði í rekstri,“ sagði Georg. Samkvæmt landhelgisgæsluáætlun, sem ríkisstjórnin samþykkti 2007, er talið nauðsynlegt að reka minnst þrjú varðskip. Georg sagði að gengið hefði verið út frá því að nýi Þór bættist við flotann en fyrir eru varðskipin Ægir og Týr.

„Það hefur ekkert breyst í þeim efnum, nema í þá átt að við þurfum að reka enn fleiri skip,“ sagði Georg. „Hins vegar gerum við okkur grein fyrir því að aðstæður á Íslandi eru ákaflega sérstakar nú og við munum sníða okkur stakk eftir því. Fjárveitingar til Landhelgisgæslunnar vegna 2010 liggja ekki fyrir, ekki frekar en til annarra stofnana. Þegar þær liggja fyrir munum við laga reksturinn að þeim.“

Reiknað er með að hægt verði að reka varðskipið Þór með 18 manna áhöfn líkt og er á varðskipunum Ægi og Tý. Það er lágmarksáhöfn, að sögn Georgs. Hann telur að reksturskostnaður nýja varðskipsins verði mjög áþekkur og reksturskostnaður gömlu skipanna. „Það er allt önnur og betri orkunýting í þessu nýja skipi, enda er þetta 40 árum yngri hönnun. Vélarnar eru miklu sparneytnari en þær sem við notum í dag,“ sagði Georg.

Ekkert hefur verið ákveðið um að leigja nýja Þór til Noregs. Georg sagði að hugmyndir um það tengdust viðræðum við norska sjóherinn um samstarfssamning. Norska strandgæslan er innan sjóhersins. Um er að ræða sambærilegan samning og gerður var við danska sjóherinn sem annast m.a. landhelgisgæslu við Færeyjar og Grænland. Georg sagði að í viðræðunum hefði m.a. verið rætt um samnýtingu á skipum, mannskap og öðrum tækjum. Einnig svæðaskiptingu við leit og björgun. Þar hefði m.a. komið upp að Norðmenn kynnu að þurfa á skipi að halda á árunum 2009 og 2011.

Ekki nýtt að fullu hér heima

Georg sagði nokkuð ljóst að ekki yrði mögulegt að nýta tæki Landhelgisgæslunnar að fullu hér heima á næstunni. Því væri talið skynsamlegt að kanna möguleika á að leigja tækin tímabundið til útlanda. Georg lagði áherslu á að ekkert hefði verið ákveðið um þetta.

Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, er nú tímabundið í geymslu á Akureyri. Georg sagði ástæðu þess vera tvíþætta. Tveir flugmenn vélarinnar væru að fara til þjálfunar á nýju Dash-8-vélinni og reiknað væri með að fleiri færu síðar. Einnig þyrfti að gera breytingar á flugskýli Gæslunnar vegna komu nýju flugvélarinnar.

S&S

Hvert verður hlutverk Þórs?

Þór verður fullkomnasta varðskip sinnar tegundar á Norður-Atlantshafi. Auk hefðbundinnar landhelgisgæslu verður nýja varðskipið mikilvægur hlekkur í samstarfi Íslendinga við nágrannaþjóðir sem gerir ráð fyrir gagnkvæmri aðstoð við öryggiseftirlit og björgun.

Hvaða búnaður verður í Þór?

Um borð verður búnaður til mengunarvarna, fjölgeislamælir og DPS-kerfi sem gerir kleift að láta skipið sjálft halda kyrru fyrir í ákveðinni stöðu á sama stað með mikilli nákvæmni. Einnig öflugur eftirlitsbúnaður, t.d. innrauðar og næturmyndavélar. Skipið getur verið færanleg stjórnstöð í neyðaraðgerðum.

Hvað gerir skipið fjölnota?

Auk þess að vera varðskip verður það öflugt dráttarskip með 120 tonna toggetu. Snúningspunktur dráttarvírs er fyrir framan stýri og skrúfur og því auðvelt að breyta stefnu þótt dregin séu stór skip.