Þátttakandi Guðjón Friðriksson.
Þátttakandi Guðjón Friðriksson.
HALDIÐ verður á Vopnafirði í dag sameiginlegt málþing Kaupvangs, menningar- og fræðaseturs á Vopnafirði og ReykjavíkurAkademíunnar í dag.
HALDIÐ verður á Vopnafirði í dag sameiginlegt málþing Kaupvangs, menningar- og fræðaseturs á Vopnafirði og ReykjavíkurAkademíunnar í dag. Um allt land er vaxandi áhugi á fræðum og menningu og byggðarlög eru að vakna til vitundar um þau verðmæti sem leynast í eigin ranni og akademískir fræðimenn sýna þeim vaxandi áhuga, eins og segir tilkynningu. ReykjavíkurAkademían hefur unnið markvisst að því undanfarin ár að efla með samvinnuverkefnum fræðastarf um land allt. Málþingið er liður í þeirri viðleitni að auka þá samvinnu. Málþingið er öllum opið og hefst kl.12.