Skóladótið Það er nauðsynlegt að hafa góða skólatösku en útlitið skiptir líka máli.
Skóladótið Það er nauðsynlegt að hafa góða skólatösku en útlitið skiptir líka máli.
Börn þurfa oft að bera ansi þungar byrðar fram og til baka í skólann. Fjöldann allan af bókum og möppum auk þess sem þau eru með pennaveski og annað dót. Það er því grundvallaratriði að velja rétta skólatösku sem styður vel við bakið og meiðir hvergi.
Börn þurfa oft að bera ansi þungar byrðar fram og til baka í skólann. Fjöldann allan af bókum og möppum auk þess sem þau eru með pennaveski og annað dót. Það er því grundvallaratriði að velja rétta skólatösku sem styður vel við bakið og meiðir hvergi. Sérstaklega á þetta kannski við hjá eldri börnunum sem vilja láta útlitið ráða við kaup á töskum en það eru ekki alltaf bestu töskurnar. Það er því nauðsynlegt að foreldri og barn komist að samkomulagi og finni tösku sem er góð og lítur vel út.