Risastórt 90's partí með DJ Kiki-Ow og DJ Curver verður haldið á Nasa við Austurvöll annað kvöld. Síðastliðin fjögur ár hafa plötusnúðarnir Kiki-Ow og Curver haldið sín vinsælu 90's partí og kvöldin þeirra hafa verið gríðarlega vel sótt.

Risastórt 90's partí með DJ Kiki-Ow og DJ Curver verður haldið á Nasa við Austurvöll annað kvöld.

Síðastliðin fjögur ár hafa plötusnúðarnir Kiki-Ow og Curver haldið sín vinsælu 90's partí og kvöldin þeirra hafa verið gríðarlega vel sótt. Þeir sem vilja dansa ættu endilega að skella sér í rave-gallann á morgun og fara á Nasa því þar verður pottþétt dansstuð.

Stuðið hefst klukkan 1 eftir miðnætti og er 20 ára aldurstakmark. Miðaverð er 1.500 kr., miðasala er á www.midi.is og í verslunum Spútnik.

Útvarpsstöðin FM957 verður með sérstakan 90's dag á morgun í tilefni partísins á Nasa.