Nasl Ávextir og hnetur eru góðar á milli mála.
Nasl Ávextir og hnetur eru góðar á milli mála.
Gott nesti sér til þess að halda námsmönnum vel vakandi í gegnum daginn. Ýmislegt má taka með sér að heiman til að narta í gegnum langan dag. Heima fyrir er hægt að baka hollar og góðar múffur, skonsur eða annað góðgæti og smyrja með hollu áleggi.
Gott nesti sér til þess að halda námsmönnum vel vakandi í gegnum daginn. Ýmislegt má taka með sér að heiman til að narta í gegnum langan dag. Heima fyrir er hægt að baka hollar og góðar múffur, skonsur eða annað góðgæti og smyrja með hollu áleggi. Rúsínur, þurrkaðir ávextir og hnetur í poka eru líka gott nasl svo og auðvitað ávextir. Síðan er mikilvægt að drekka vel af vatni, sérstaklega á móti koffíndrykkjum dagsins.