— Morgunblaðið/Eggert
ÁRNI Þór Sigurðsson og Bjarkey Gunnarsdóttir, Vinstri grænum, sjást hér á leið á fund fjárlaga-nefndar í gær. Hann stóð fram á nótt.

ÁRNI Þór Sigurðsson og Bjarkey Gunnarsdóttir, Vinstri grænum, sjást hér á leið á fund fjárlaga-nefndar í gær. Hann stóð fram á nótt. Mikil spenna ríkti meðal þingmanna vegna málsins í gær og var fjárlaganefnd kölluð fimm sinnum saman til fundar vegna Icesave-samninganna. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kom á fund nefndarmanna eftir miðnætti í gær.

Þingmenn freistuðu þess að ná samstöðu um málið en allt kom fyrir ekki. Stjórnarflokkarnir vonuðust þó eftir því að meirihluti væri tryggður fyrir framgangi málsins.