Hjólagarpur Þessi er nú kannski full ungur til að hjóla í skólann sinn.
Hjólagarpur Þessi er nú kannski full ungur til að hjóla í skólann sinn.
Þegar barnið er orðið nógu gamalt til að ganga eða hjóla eitt í skólann er gott að rifja upp með því umferðarreglurnar og vera viss um að það þekki bestu leiðina.
Þegar barnið er orðið nógu gamalt til að ganga eða hjóla eitt í skólann er gott að rifja upp með því umferðarreglurnar og vera viss um að það þekki bestu leiðina. Gakktu með barninu fyrstu dagana og áréttaðu að það reiði hjólið yfir götuna á umferðarljósum, líti vel til beggja hliða og fylgist með umferðinni. Sé hægt að sneiða hjá stórum umferðargötum á leiðinni er það auðvitað betra jafnvel þó að leiðin sé aðeins lengri.