Breakbeat.is heldur „All Nighter“-tjútt á Jacobsen í kvöld þar sem fjölmargir tónlistarmenn og plötusnúðar koma fram.

Breakbeat.is heldur „All Nighter“-tjútt á Jacobsen í kvöld þar sem fjölmargir tónlistarmenn og plötusnúðar koma fram. Dagskráin hefst á efri hæð Jacobsen um miðnætti með tónleikum hljómsveitarinnar The Zuckakis Mondeyano Project en að þeim loknum taka Leópold og Ewok við í house- og groove-fíling fram eftir nóttu.

Á neðri hæðinni verða bumbur, bassar og brotnir taktar að hætti Breakbeat.is. Fastasnúðar Breakbeat.is sjá ásamt góðum gestum um að kokka fram úrvals dubstep- og drum&bass-tóna.

Aðgangur er ókeypis.