ÁSTARLÍF Hangover -leikarans Bradley Cooper er í deiglunni um þessar mundir en hann virðist vera með tvær frægar í takinu. Fyrr í sumar var hann sagður eiga í ástarsambandi við Jennifer Aniston en nýlega sást til hans í Barcelona með leikkonunni Renee Zellweger.
Þau flugu til Spánar síðastliðinn laugardag og gátu ekki slitið sig frá hvort öðru, Zellweger sást meðal annars klípa hann í rassinn. Sambandið hófst í júlímánuði en þá sást til þeirra á stefnumóti í New York.
Cooper og Zellweger leika saman í myndinni Case 39 en vitni að atlotum þeirra segja að þau virðist vera mikið meira en vinir.
„Hann dró stólinn út fyrir hana og kyssti hana á handarbakið. Á meðan á máltíðinni stóð voru þau daðursleg, hún fiktaði í hárinu á sér og snerti handlegg hans oft. Hann hvíslaði síðan einhverju að henni og þau hlógu bæði,“ sagði eitt vitnið að rómantískum kvöldverði þeirra.