Leiðarendi Myndir frá tökudeginum, 8. ágúst.
Leiðarendi Myndir frá tökudeginum, 8. ágúst.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þess var minnst um liðna helgi að fjörutíu ár eru liðin síðan ljósmyndin fræga sem prýðir síðustu plötu Bítlanna, Abbey Road , var tekin ( Let it Be kom út á eftir, en var tekin upp á undan).

Þess var minnst um liðna helgi að fjörutíu ár eru liðin síðan ljósmyndin fræga sem prýðir síðustu plötu Bítlanna, Abbey Road , var tekin ( Let it Be kom út á eftir, en var tekin upp á undan). Plötuumslagið er eitt hið frægasta í dægurtónlistarsögunni, líkt og er reyndar með flest plötuumslög Bítlanna, en það ásamt Sgt. Pepper- umslaginu er það sem hefur oftast verið heiðrað með vel meintum útúrsnúningum og eftirlíkingum. Myndatakan fór fram 8. ágúst og menn voru fljótir að hlaða alls kyns táknum og merkingum á þá mynd sem rataði á umslagið, fyrst og fremst auðvitað vegna þess hvaða hljómsveit átti í hlut en eðlilega gaf þessi stutti göngutúr þeirra félaga yfir zebrabrautina og sú staðreynd að þetta var síðasta plata þeirra félaga viðkvæmum hjörtum færi á að fara í gang með slíkar kenningar. Síðasti göngutúr sveitarinnar“, „komnir á leiðarenda“ o.s.frv.

Abbey Road átti upprunalega að heita Everest og var ráðgert að fljúga sveitinni til Nepal og taka myndina fyrir plötuna þar (hugsið ykkur!). Fallið var frá þeirri hugmynd og sveitin fór í heldur styttra ferðalag, rétt út á götu, steinsnar frá hljóðverinu þar sem þeir voru að vinna, Abbey Road. Sveitin nennti ekki heldur að kokka upp titil á plötuna og létu hana bara heita eftir hljóðverinu. Sumir fræðimenn hafa haldið því fram að þetta hafi verið lýsandi fyrir ládeyðuna í hópnum á þessum tíma. Ljósmyndarinn fékk tíu mínútur til að klára „skotið“ og tók sjö eða átta myndir. Gríðarleg hitabylgja dundi á London um þetta leyti og í einum rúntinum yfir götuna fór McCartney úr sandölunum sínum. Sá gerningur nægði til að hleypa af stað alls kyns kenningum sem verða ekki raktar sérstaklega hér en leikir sem lærðir hafa rýnt af offorsi í blessað umslagið, líkt og með Sgt. Pepper .

Afmæli þessa umslags gefur færi á hugleiðingum um umslags-list í poppi og rokki yfirleitt, sem margir segja vera deyjandi list. Það voru að sjálfsögðu Bítlarnir sem voru upphafsmenn þess að hefja slíka hönnun upp á annað stig og stærð výnilplatna bauð upp á að hægt væri að vinna nokkurs konar smámyndir eða listaverk. Smæð kassettna og geisladiska dró svo þróttinn úr fræðunum og niðurhal er í eðli sínu án svona skreytinga. Engar haldbærar „lausnir“ hafa sosum komið fram hvað þetta varðar, að einhverju leyti er þróunin óhjákvæmileg og að gráta hana væri rómantísk viðkvæmni. Sumar sveitir sem gefa út netplötur láta þó fylgja með umslag, líkt og um plötuumslag væri að ræða, og það er svo hægt að blása það upp í Photo-Editornum. En áþreifanlegt er það ekki, nema þú viljir skemma tölvuskjáinn þinn. Þetta er kannski það næsta sem verður komist því að halda lífi í þessari 20. aldar list?

Platan Abbey Road kom svo út 26. september árið 1969 og á því fertugsafmæli eftir u.þ.b. einn og hálfan mánuð. Engin sérstök afmælisútgáfa er áætluð en þann 9. september kemur hún samt út með öllum hinum Bítlaplötunum endurútgefin með bættum stafrænum hljómgæðum í safnkassa.

arnart@mbl.is

Arnar Eggert Thoroddsen