Ólöf K. Sigurðardóttir
Ólöf K. Sigurðardóttir
SAFNARARNIR Bragi Guðlaugsson og Sverrir Kristinsson verða með leiðsögn um sýninguna Safn(arar) í Hafnarborg á sunnudag kl. 15 ásamt sýningarstjóranum Ólöfu K. Sigurðardóttur.
SAFNARARNIR Bragi Guðlaugsson og Sverrir Kristinsson verða með leiðsögn um sýninguna Safn(arar) í Hafnarborg á sunnudag kl. 15 ásamt sýningarstjóranum Ólöfu K. Sigurðardóttur. Sýningunni lýkur um helgina, en á henni eru valin verk úr listaverkagjöf Sverris Magnússonar og konu hans Ingibjargar Sigurjónsdóttur til Hafnarborgar og verk úr einkasöfnum Gunnars Dungal og Þórdísar Öldu Sigurðardóttur, Braga Guðlaugssonar, Ingunnar Wernersdóttur og Sverris Kristinssonar. Öll eiga þau áhugaverð listaverk sem mörg eru meðal perla íslenskrar listasögu.