Tilvalin gjöf Gjafabréf á fróðlegt námskeið er góð gjöf sem gleður.
Tilvalin gjöf Gjafabréf á fróðlegt námskeið er góð gjöf sem gleður.
Mennt er máttur og aldrei er of seint að drífa sig af stað og setjast á skólabekk eða sækja námskeið á sínu áhugasviði. Ef stórafmæli í fjölskyldunni nálgast getur verið góð hugmynd að slá saman og gefa viðkomandi gjafabréf á skemmtilegt námskeið.

Mennt er máttur og aldrei er of seint að drífa sig af stað og setjast á skólabekk eða sækja námskeið á sínu áhugasviði. Ef stórafmæli í fjölskyldunni nálgast getur verið góð hugmynd að slá saman og gefa viðkomandi gjafabréf á skemmtilegt námskeið. Annað hvort er hægt að kanna laumulega hvort afmælisbarnið hafi sérstakan áhuga á ákveðnu námskeiði eða gefa gjafabréf á námskeið að eigin vali. Slík gjöf gleymist seint og ætti líka að geta hvatt viðkomandi til að drífa sig á námskeið. Gjafabréfið má setja í skrautlegt umslag eða jafnvel í kassa og pakka honum síðan inn í gjafapappír til að koma á óvart.