Ráðstefnusalur Víða eru haldin erindi um skólamál.
Ráðstefnusalur Víða eru haldin erindi um skólamál.
Kennarar og áhugafólk um kennslu getur sótt margvísleg erindi og ráðstefnur um sín hugðarefni, bæði hér heima og erlendis.
Kennarar og áhugafólk um kennslu getur sótt margvísleg erindi og ráðstefnur um sín hugðarefni, bæði hér heima og erlendis. Í Strassborg í Frakklandi verður til að mynda haldin svokölluð EECERA-ráðstefna nú í september en þema hennar að þessu sinni er fjölmenning í námi ungra barna. Á ráðstefnunni verða tekin fyrir ýmiss konar erindi: fjölmenning í tengslum við innflytjendur, fjölmenning í tengslum við tungumál, menningu, trú og trúarbrögð, fjölmenning í tengslum við félagslegar aðstæður og fátækt, fjölmenning í tengslum við veikindi eða fötlun og fjölmenning í tengslum við kyn.