Umbun Ekki þarf mikið til að hvetja börnin og lítill glaðningur er nóg.
Umbun Ekki þarf mikið til að hvetja börnin og lítill glaðningur er nóg.
Það er um að gera að umbuna barninu fyrir vel unnin verk með litlum glaðningi. Hægt er að nota stimplakerfi heima fyrir þannig að barnið fái stjörnu merkta inn á hverjum degi þegar heimanámi er lokið á tilteknum tíma.

Það er um að gera að umbuna barninu fyrir vel unnin verk með litlum glaðningi. Hægt er að nota stimplakerfi heima fyrir þannig að barnið fái stjörnu merkta inn á hverjum degi þegar heimanámi er lokið á tilteknum tíma. Við lok vikunnar og fimm stjörnur er síðan hægt að baka köku með barninu, hafa eitthvað gott að borða sem það velur eða einfaldlega að leyfa því að vaka dálítið lengur. Ekki þarf mikið til en með þessum hætti er auðveldlega hægt að hvetja barnið og koma því í vana að ljúka heimalærdómi fljótt og vel þegar heim kemur.