VELTA á hlutabréfamarkaði var með meira móti í gær, en hún nam rúmum 140 milljónum króna. Langmest velta var með bréf Össurar og Marels. Hækkuðu bréf Marels um 3,03% og Össurar um 1,72%.

VELTA á hlutabréfamarkaði var með meira móti í gær, en hún nam rúmum 140 milljónum króna. Langmest velta var með bréf Össurar og Marels. Hækkuðu bréf Marels um 3,03% og Össurar um 1,72%. Ekki er ljóst hvað skýrir veltuaukninguna en engar fréttir komu frá fyrirtækjunum í gær. bjarni@mbl.is