Teknir Mennirnir teknir höndum.
Teknir Mennirnir teknir höndum.
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld fjóra menn í kjölfar tilkynningar um að þeir hefðu ógnað vegfarendum á Bíldshöfða með riffli út um bílglugga. Bifreið mannanna var stöðvuð á Sæbraut rétt fyrir klukkan tíu.

LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld fjóra menn í kjölfar tilkynningar um að þeir hefðu ógnað vegfarendum á Bíldshöfða með riffli út um bílglugga.

Bifreið mannanna var stöðvuð á Sæbraut rétt fyrir klukkan tíu. Riffillinn reyndist vera í bílnum og voru mennirnir færðir til yfirheyrslu. Lögreglan vildi í gærkvöldi ekki gefa upp hvort vopnið hefði verið hlaðið.

skulias@mbl.is