Jóhann Birnir Guðmundsson
Jóhann Birnir Guðmundsson
JÓHANN Birnir Guðmundsson knattspyrnumaður úr Keflavík er tvíkinnbeinsbrotinn og hann leikur því ekki með Suðurnesjaliðinu næstu vikurnar. Jóhann fékk þungt högg á andlitið í leiknum gegn Breiðabliki um síðustu helgi með fyrrgreindum afleiðingum.

„Þetta uppgötvaðist þegar ég fór með dóttur mína til læknis í gær. Stefáni Eggertssyni (faðir Ólafs Stefánssonar) fannst ég eitthvað undarlegur í framan. Hann sendi mig þegar í stað í myndatöku og þá kom í ljós að ég er brotinn. Ég fer í aðgerð á morgun (í dag) en ég stefni á að ná bikarúrslitaleiknum í haust,“ sagði Jóhann við Morgunblaðið í gærkvöldi. gummih@mbl.is