Hvíld Góður svefn er gulli betri.
Hvíld Góður svefn er gulli betri.
Eftir sumarið er svefntíminn oft kominn úr skorðum hjá yngri kynslóðinni. Björt sumarkvöldin heilla og krakkarnir leika sér úti fram eftir öllu.
Eftir sumarið er svefntíminn oft kominn úr skorðum hjá yngri kynslóðinni. Björt sumarkvöldin heilla og krakkarnir leika sér úti fram eftir öllu. Nú þegar skólinn er við það að byrja aftur er kominn tími til að snúa þessu ferli við og koma öllum í rúmið á skikkanlegum tíma. Það getur tekið nokkurn tíma að venjast slíkri breytingu og því gott að byrja dálitlu áður en skólastarf hefst af fullum krafti.