Oddur baldni.
Norður | |
♠108 | |
♥632 | |
♦DG1065 | |
♣Á106 |
Vestur | Austur |
♠Á7642 | ♠DG53 |
♥754 | ♥D1098 |
♦K2 | ♦73 |
♣753 | ♣DG4 |
Suður | |
♠K9 | |
♥ÁKG | |
♦Á984 | |
♣K982 |
Ein er sú varnarregla sem á misjöfnu fylgi að fagna meðal keppnisspilara, kölluð „oddball“ af Terence Reese. Íslenskir spilarar gætu talað um „Odd inn baldna“. Spil dagsins er úr Spingold-leik Jacobs og Schermer. Þrjú grönd voru spiluð á báðum borðum eftir lokaðar sagnir og útspilið var smár spaði á gosa austurs og kóng suðurs. Sagnhafi spilaði laufi á ás og tók misheppnaða tígulsvíningu. Nú skipti annar vesturspilarinn yfir í hjarta, en hinn hitti á að spila spaða.
Hvernig kemur „oddball“ hér við sögu? Ef til vill þannig: Samkvæmt reglunni sýnir há fylgja í lit sagnhafa í slag tvö áhuga í útspilslitnum. Hvorugur austurmaðurinn tímdi laufgosanum (skiljanlega) og því túlkaði annar vesturspilarinn ♦7 síðar kom sem hjartakall (og ♣4 sem spaðafrávísun).