AÐEINS 31 kaupsamningi var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 14.-20. ágúst. Að meðaltali var 38 kaupsamningum þinglýst á viku undanfarna þrjá mánuði. Á sama tímabili í fyrra voru kaupsamningarnir 67 talsins og árið 2007 voru þeir 222.

Í vikunni sem er að líða voru 25 samningar um eignir í fjölbýli og 6 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 868 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28 milljónir króna.

Þremur kaupsamningum var þinglýst á Suðurnesjum 14.-20. ágúst. Á sama tíma var 8 kaupsamningum þinglýst á Akureyri.

Engum kaupsamningum var þinglýst á Árborgarsvæðinu á tímabilinu, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands.