Williams Vill hafa tengdó með.
Williams Vill hafa tengdó með.
TÓNLISTARMAÐURINN Robbie Williams hefur boðið tengdamömmu sinni að flytja inn til sín. Williams er lofaður Aydu Field og kann svona ljómandi vel við móður hennar, Gwen Field.

TÓNLISTARMAÐURINN Robbie Williams hefur boðið tengdamömmu sinni að flytja inn til sín.

Williams er lofaður Aydu Field og kann svona ljómandi vel við móður hennar, Gwen Field. Þau tvö hafa stundað það að spila póker langt fram eftir nóttu margar nætur í röð og ná svo vel saman að hann bauð henni að flytja inn á heimili sitt í Bretlandi.

Williams og unnustan hafa búið í Los Angeles undanfarið en flytja til Bretlands þegar næsta plata Williams kemur út, Reality Killed the Video Star . Hann telur líka að Ayda verði ánægðari fjarri heimalandi sínu, Ameríku, ef mamma hennar er með í för.