TVÖ mótorhjólaslys urðu í höfuðborginni síðdegis í gær. Maður datt af vélhjóli á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar og er talið að hann hafi fótbrotnað. Þá var ekið á vélhjól á Skeiðarvogsbrú og var ökumaður hjólsins fluttur á slysadeild.
TVÖ mótorhjólaslys urðu í höfuðborginni síðdegis í gær.
Maður datt af vélhjóli á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar og er talið að hann hafi fótbrotnað.
Þá var ekið á vélhjól á Skeiðarvogsbrú og var ökumaður hjólsins fluttur á slysadeild.
Harður árekstur tveggja bíla varð laust fyrir klukkan 17 á Breiðholtsbraut á móts við Stekkjarbakka. Einn var fluttur á sjúkrahús en var ekki talinn alvarlega slasaður.