BORGARBÓKASAFN býður krökkum að koma í heimsókn á Menningarnótt og klippa niður bækur og búa til úr þeim listaverk. Þetta er eitt af atriðunum á fjölbreyttri dagskrá á Menningarnótt í dag og kvöld.
BORGARBÓKASAFN býður krökkum að koma í heimsókn á Menningarnótt og klippa niður bækur og búa til úr þeim listaverk. Þetta er eitt af atriðunum á fjölbreyttri dagskrá á Menningarnótt í dag og kvöld. En þar sem úr svo ótal mörgu er að velja eiga áhugaverðir viðburðir það á hættu að gleymast og því getur verið gott að skipuleggja sig áður en haldið er í bæinn. Í Barnablaðinu í dag er að finna viðburðakort fyrir krakkana og er tilvalið að leyfa þeim að skoða myndir, lesa textann og velja það sem vekur áhuga þeirra.