KOMIÐ er að lokahnykk átaksins Á allra vörum með söfnunarþætti á Skjá einum föstudagskvöldið 28. ágúst nk.

KOMIÐ er að lokahnykk átaksins Á allra vörum með söfnunarþætti á Skjá einum föstudagskvöldið 28. ágúst nk.

Í ár hefur átakið beint sjónum sínum að hvíldarheimili til handa krabbameinssjúkum börnum og fjölskyldum þeirra, en það hófst í lok maí með sölu á varaglossum frá Dior í samvinnu við Heildverslun Halldórs Jónssonar og Iceland Express. Glossin voru seld í verslunum víðsvegar um landið og um borð í vélum Iceland Express.