— Morgunblaðið/Eggert
ALLS hafa 11.136 skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer í dag. Það er svipaður fjöldi og í fyrra, en þá voru hlaupararnir 11.265 talsins.
ALLS hafa 11.136 skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer í dag. Það er svipaður fjöldi og í fyrra, en þá voru hlaupararnir 11.265 talsins. Gert er ráð fyrir að skráningum fjölgi í dag, sérstaklega í Latabæjarhlaupið, sem hefst kl. 12.40 í Hljómskálagarðinum með upphitum Íþróttaálfsins og Sollu stirðu. Alls ætla 670 að hlaupa heilt maraþon, þ.e. rúmlega 42 kílómetra.