Dr. Eyjólfur Kjalar
Dr. Eyjólfur Kjalar
DR. EYJÓLFUR Kjalar Emilsson hefur verið ráðinn prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Eyjólfur hefur verið prófessor í heimspeki við Háskólann í Osló undanfarin 14 ár og mun gegna því starfi áfram.
DR. EYJÓLFUR Kjalar Emilsson hefur verið ráðinn prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Eyjólfur hefur verið prófessor í heimspeki við Háskólann í Osló undanfarin 14 ár og mun gegna því starfi áfram. Hann er heimspekingur að mennt með doktorsgráðu frá Princeton-háskóla í Bandaríkjunum. Hann mun auk kennslu taka þátt í að móta áfram námsbraut í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði.