Katrín Elvarsdóttir
Katrín Elvarsdóttir
Í DAG verður opnuð í Gallerí Ágústi sýningin Haustsýning í tilefni af því að nú er að hefjast þriðja starfsár gallerísins. Fimm listamenn taka þátt í sýningunni.

Í DAG verður opnuð í Gallerí Ágústi sýningin Haustsýning í tilefni af því að nú er að hefjast þriðja starfsár gallerísins. Fimm listamenn taka þátt í sýningunni. Á henni eru glæný verk sem unnin eru í ýmsa miðla svo sem ljósmyndir og veggverk, málverk á striga, ál og viðarplötur.

Listamennirnir fimm eru: Guðrún Kristjánsdóttir, Hiroyuki Nakamura, Katrín Elvarsdóttir, Marta María Jónsdóttir og Steingrímur Eyfjörð. Listamannahópurinn er fjölbreyttur og verkin sýna vel þá breidd og ferskleika sem einkennt hefur dagská gallerísins. Nánar á: www.galleriagust.is.