— Morgunblaðið/Kristinn
ALLS tóku 164 þátt í sundi frá Skarfakletti út í Viðey síðdegis í gær og hafa aldrei svo margir tekið þátt í sjóhópsundi hér á landi til þessa. Vinsældir sjósunds hafa aukist mikið að undanförnu eins og góð þátttaka í gær vitnar vel um.
ALLS tóku 164 þátt í sundi frá Skarfakletti út í Viðey síðdegis í gær og hafa aldrei svo margir tekið þátt í sjóhópsundi hér á landi til þessa. Vinsældir sjósunds hafa aukist mikið að undanförnu eins og góð þátttaka í gær vitnar vel um. Þeir sem að sundinu í gær stóðu voru meðal annars svonefndir Ermarsundgarpar, sexmenningar sem ætla boðsund báðar leiðir yfir Ermarsundið milli Bretlands og Frakklands í næsta mánuði.