The Gentlemen Stuttmynd með gítartöktum eftir Janus Braga Jakobsson.
The Gentlemen Stuttmynd með gítartöktum eftir Janus Braga Jakobsson.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Á ANNAN tug íslenskra kvikmynda verða sýndar á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík sem fer fram 17. til 27. september. Um er að ræða myndir í fullri lengd og stuttmyndir.

Á ANNAN tug íslenskra kvikmynda verða sýndar á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík sem fer fram 17. til 27. september. Um er að ræða myndir í fullri lengd og stuttmyndir. Alls bárust um 50 umsóknir frá íslensku kvikmyndagerðarfólki til hátíðarinnar í ár.

Meðal myndanna er Louise Michel eftir Sólveigu Anspach. Sú mynd fjallar um hina frönsku Louise Michel sem var í senn mótmælandi, sjúkraliði og kennari í París á 19. öld. Þá verður sýnd stuttmyndin Flæktar sálir og fáein símanúmer eftir Ísold Uggadóttur sem fjallar um brothætt samband ungs pars í Reykjavík.

Heimildarmyndin Edie & Thea; A Very Long Engagement , sem Gréta Ólafsdóttir framleiðir, er sönn ástarsaga um samband tveggja kvenna í New York sem spannar ríflega fjóra áratugi. Leikstjóri er Susan Muska. Myndin hlaut áhorfendaverðlaun sem besta heimildamynd á OUTFEST 2009 og verður um Norðurlandafrumsýningu að ræða á RIFF.

Loks er vert að geta stuttmyndarinnar The Gentlemen , í leikstjórn Janusar Braga Jakobssonar. Hún segir frá þremur ungum mönnum sem hittast á bryggju. Þeir rifja upp gömul afrek, grípa í gítarana sína og leggja drög að nýrri hljómsveit. Þremenningarnir sem fara með aðalhlutverkin eru ekki ókunnugir gítarleik en þeir eru Andri Freyr Viðarsson, gítarleikari í Bisund, Botnleðju og Fídel, Haukur Þórðarsson, gítarleikari í Hundrað köllunum og Kanada, og Sindri Már Finnbogason, gítarleikari í Wool.

Úrvalsflokkar kvikmynda

Efnisflokkar Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík eru óðum að taka á sig endanlega mynd. Meðal þeirra flokka sem nutu góðs af metfjölda innsendra mynda á hátíðina í ár eru „Fyrir opnu hafi“ annars vegar og „Kastljósið“ hins vegar. Flokkarnir tveir eiga það sammerkt að hafa að geyma úrvals kvikmyndir hvaðanæva úr heiminum, en mismunurinn felst einkum í því að „Fyrir opnu hafi“ er samnefnari mynda sem vakið hafa umtal og athygli á meðan „Kastljósið“ beinir sjónum sínum að myndum sem þegar hafa hlotið verðlaun á kvikmyndahátíðum það sem af er árinu 2009.

Fyrir opnu hafi

Í þeim flokki má meðal annars finna myndina Slovenka eftir Damjan Kozole frá Slóveníu, Árbúar/River people eftir He Jianjun frá Kína, ísraelsku myndina Þanin augu / Eyes wide open eftir Haim Tabakman, Bjarnargreiði / Help gone mad eftir Rússann Boris Khlebnikov, Sori í bráðinu /Dirty mind eftir Pieter Van Hees frá Belgíu og Vafningar / Bandaged eftir Þjóðverjann Maria Beatty.

Kastljósið

Þennan flokk skipa verðlaunamyndirnar: Hundstönn/Dogtooth/Kynodontas eftir Yorgos Lanthimos frá Grikklandi. Hann vann Un certain regard verðlaunin fyrir Hundstönn á Cannes í vor.

Blygðunarlaust/Shameless eftir Tékkann Jan Høebejk, Myndin er innblásin af bókinni Short Stories about Marriage and Sex eftir Michal Viewegh en hann lýsir myndinni sem „órómantískri gamanmynd. Myndin hefur notið gríðarlegra vinsælda í Tékklandi.

Fiskabúrið/Fish tank eftir Andrea Arnold frá Bretlandi, myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrr á árinu og hlaut þar dómaraverðlaun. Andrea Arnold hefur tvisvar sinnum keppt um gullpálmann í Cannes sem og hlotið Óskarinn árið 2005 fyrir stuttmynd sína, Wasp .