NÝLEGA sást til Cameron Diaz troða hamborgara upp í sig í heilu lagi til að ganga í augun á Keanu Reeves.
Leikararnir tveir voru á stefnumóti í Los Angeles og var Diaz að sýna Reeves hvað hún kæmi miklu upp í sig í einu, en það ku vera mjög mikið enda Diaz nokkuð munnstór. Reeves mun hafa hlegið mikið að þessu uppátæki hennar.
Annars er orðið erfitt að henda reiður á ástamálum Diaz sem hittir nú hvert kyntröllið á fætur öðru. Hún hefur nýlega verið sögð eiga í ástarsambandi við Jude Law og Leonardo DiCaprio og fyrr í þessari viku var sagt frá því að Diaz gæti ekki haft hendurnar af Sex and the City -leikaranum Jason Lewis á sushi-veitingastað.
Diaz og Reeves léku saman árið 1996 í myndinni Feeling Minnesota . Á stefnumótinu, sem til þeirra sást á, fengu þau sér líka hanastél og gengu síðan saman hönd í hönd í nálægt kvikmyndahús.