ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gekkst í gær undir aðgerð á Landspítalanum vegna axlarbrots. Forsetinn féll af hestbaki í útreiðartúr nálægt Borgarvirki í Húnaþingi á þriðjudagskvöld. Forsetinn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.

Örnólfur Thorsson forsetaritari segir að aðgerðin hafi gengið vel. Óvíst er hve lengi Ólafur Ragnar dvelur á spítala.