Kossaflens Jennifer Aniston og Gerard Butler eru kannski par.
Kossaflens Jennifer Aniston og Gerard Butler eru kannski par.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
LEIKARARNIR Jennifer Aniston og Gerard Butler hafa verið að stelast til að kyssast við tökur á myndinni The Bounty sem þau fara með aðalhlutverk í.

LEIKARARNIR Jennifer Aniston og Gerard Butler hafa verið að stelast til að kyssast við tökur á myndinni The Bounty sem þau fara með aðalhlutverk í.

Orðrómur þess efnis að þau væru að draga sig saman hefur gengið í nokkurn tíma en hvorugt hefur staðfest hann. Á tökustað eru þau þó mjög náin að sögn viðstaddra og sást til Butler gefa Aniston lítinn koss þegar hann hélt að enginn sæi til. Á einum tímapunkti héldust þau líka í hendur í smástund.

„Samband þeirra virðist vera svalt og sætt. Þau líta út fyrir að vera á byrjunarreit sambandsins,“ lætur einn á tökustað hafa eftir sér.

Aniston var að hitta leikarann Bradley Cooper fyrr á þessu ári en hann er nú í sambandi með Renee Zellweger. Aniston hefur sagt vinum sínum að henni sé alveg sama enda sé hún komin yfir hann og Zellweger megi fá hann.