Eiga þriðjung almennra krafna Óttar Pálsson, forstjóri Straums, vill koma því á framfæri að við vinnslu aðsendrar greinar sem birtist í Morgunblaðinu í gær slæddist inn sú villa að íslenskir lífeyrissjóðir myndi þriðjung almennra kröfuhafa bankans.
Eiga þriðjung almennra krafna
Óttar Pálsson, forstjóri Straums, vill koma því á framfæri að við vinnslu aðsendrar greinar sem birtist í Morgunblaðinu í gær slæddist inn sú villa að íslenskir lífeyrissjóðir myndi þriðjung almennra kröfuhafa bankans. Þar átti að koma fram að íslenskir fjárfestar, þar á meðal lífeyrissjóðir, eigi um þriðjung almennra krafna.