„FERÐ á Oliver! er fín byrjun á bókmenntalegu uppeldi,“ segir Guðmundur Brynjólfsson gagnrýnandi í dómi sínum um söngleikinn sem frumsýndur var í Þjóðleikhúsinu annan dag jóla.
Kveðst Guðmundur hrópa húrra fyrir uppsetningunni, sem hann gefur fjórar stjörnur. „Stjörnur þessarar sýningar eru Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Þórir Sæmundsson,“ segir í dómnum. Fáir hnökrar séu á leikstjórn Selmu Björnsdóttur og dansar Alettu Collins falli vel að sýningunni. Hópatriðin fá einnig lof og eru sögð „flott og full af skemmtilegum hugmyndum og aginn og stjórnin á öllum litlu (mögulegu) senuþjófunum til fyrirmyndar“. | 29