Guðmundur Sören Magnússon fæddist í Reykjafirði, Vestur-Barðastrandarsýslu 8. október 1922. Fyrrverandi bóndi í Hrauni í Keldudal og síðar Brekku í Dýrafirði. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 15. desember sl.
Foreldrar hans voru Guðmunda Kristín Guðmundsdóttir, f. 5.11. 1896, d. 15.7. 1976, og Magnús Helgi Guðmundsson, f. 29.1. 1888, d. 22.1. 1961. Guðmundur Sören átti einn bróður, Guðmund Friðgeir Guðmundsson, f. 2.5. 1927, d. 22.6. 2004. Þau bjuggu á Suðureyri við Súgandafjörð þar til Guðmundur Sören var sjö ára er fjölskyldan flutti að Hrauni í Keldudal árið 1929. Þar ólst hann upp við öll almenn sveitastörf og reri til fiskjar. Hann tók síðan við búi foreldra sinna er þau ásamt bróður hans fluttu inn að Þingeyri í Dýrafirði.
Guðmundur Sören kvæntist Kristínu Gunnarsdóttur, f. 17. júlí 1931 í Reykjavík. Foreldrar hennar Guðrún Árnadóttir, f. 14.6. 1903, d. 24.2. 1968, og Gunnar Ingiberg Ingimundarson, f. 17.4. 1894, d. 4.3. 1965. Guðmundur Sören og Kristín eignuðust 12 börn: 1) Bjarni, f. 29.5. 1945. 2) Guðrún Finnborg, f. 11.8. 1948, en hún lést 16.1. 1972, eiginmaður hennar var Pétur Jakob Líndal sem lést 27.10. 1974. Þau eignuðust eina dóttur. 3) Guðmunda Kristín, f. 30.10. 1949, eiginmaður hennar er Höskuldur Ragnarsson og eiga þau þrjú börn. 4) Magnús Helgi, f. 21.11. 1950. 5) Sigurveig, f. 13.2. 1952, sambýlismaður hennar er Sölvi Ellert Sigurðsson og eiga þau tvö börn. Fyrir átti hún fjögur börn af fyrra hjónabandi með Guðmundi Júní Proppé sem lést 5.1. 2003. 6) Gunnar Benedikt, f. 22.11. 1953, eiginkona hans er Guðrún Kristín Ingimundardóttir og eiga þau fjögur börn. 7) Meybarn, f. 22.11. 1954, d. 22.11. 1954, andvana fædd. 8) Mikael Ágúst, f. 5.8. 1956, sambýliskona hans er Alexandra Sineenard Prangsri, hún á einn son frá fyrra sambandi. Hann á fjögur börn frá fyrra hjónabandi. 9) Ingibjörg María, f. 15.3. 1959, eiginmaður hennar er Þráinn Sigurðsson. Þau eiga tvær dætur. 10) Jónína Björg, f. 11.9. 1961, en hún lést 13.6. 2008, eiginmaður hennar var Hnikarr Antonsson. Þau eignuðust þrjú börn. 11) Sigríður Gerða, f. 1.2. 1966, sambýlismaður hennar er Áskell Sigurðsson. Þau eiga tvö börn. 12) Katrín, f. 18.5. 1967, sambýlismaður hennar var Áskell Bjarnason sem lést 6.6. 2005. Hún á tvö börn.
Guðmundur Sören og Kristín voru síðustu ábúendur á Hrauni í Keldudal en þau fluttu árið 1957 að Brekku í Brekkudal sem er skammt frá Þingeyri. Þar átti fjölskyldan síðan heima þar til íbúðarhús þeirra brann í nóvember 1964. Þá fluttust þau til Þingeyrar þar sem þau hafa búið síðan, en Guðmundur Sören hélt áfram búskap á Brekku þótt hann byggi á Þingeyri. Hann lét af bústörfum 1998 er hann seldi Brekku. Ásamt því að vera bóndi vann Guðmundur Sören ýmis störf á Þingeyri.
Útför Guðmundar Sörens verður gerð frá Þingeyrarkirkju í dag, mánudaginn 28. desember, og hefst athöfnin kl. 14.
Mjök erum tregt
tungu at hræra
eða loptvætt
ljóðpundara;
esa nú vænligt
of Viðurs þýfi
né hógdrægt
ór hugar fylgsni
(Egill Skallagrímsson)
Elsku pabbi við kveðjum þig nú með harmi og söknuð í hjarta en minnig þín mun ætíð lifa með okkur. Við minnumst þín með þakklæti og ást í huga fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Þú varst mjög fróður um allt, víðlesinn og ávallt tilbúinn til að lesa fyrir okkur og uppfræða og sérstakt dálæti hafðir þú á Íslendingasögunum. Við gátum alltaf leitað til þín því ráðagóður varstu.
Við minnust ófárra ferða í Keldudalinn þinn sem var þér svo hugleikinn þar sem þú þekkir hvern steinn og hverja þúfu frá því þú áttir heima þar sem barn og seinna meir sem bóndi í Hrauni. Það voru alltaf skemmtilegar og fræðandi ferðir. Einnig minnumst við bústarfana á Brekku, vetur, sumar, vor og haust, sem við tókum öll þátt í með þér og mörg skemmtileg atvik rifjast upp. Það var alltaf svo gaman að vera með þér pabbi.
Það var stutt í grallarann í þér og þú hafðir góða kímnigáfu.
En fyrst og síðast munum við þig sem ástríkan, umhyggjusaman og fræðandi föður sem við litum öll upp til.
Elsku mamma, þú stóðst við hlið pabba í blíðu og stríðu öll þessi ár, þið studduð og styrktuð hvort annað og undir það síðasta annaðist þú hann í veikindum sínum og gerðir honum kleift að vera sem lengst heima en þar vildi hann vera. Saman styðjum við og styrkjum hvert annað í sorg okkar og söknuði og höldum á lofti minningu hans.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Guð geymi þig elsku pabbi okkar.
Þín börn,
Bjarni, Guðmunda Kristín,
Sigurveig, Magnús Helgi,
Gunnar Benedikt, Mikael Ágúst, Ingibjörg María, Sigríður Gerða og Katrín.
Ég man sérstaklega eftir því þegar ég var í fyrsta sinn ein fyrir vestan á Þingeyri hjá þér og ömmu, ég var með hroðalega heimþrá svo að þú leyfðir mér að sofa á milli þín og ömmu. Svo dróstu upp bláu stílabókina og last fyrir mig eina sögu og það var besta saga sem ég hafði heyrt. Öll heimþráin hvarf og ég var handviss um að þetta væri fyndnasta saga sem ég hefði heyrt. Mér finnst hún ekki jafnfyndin í dag þegar ég heyri hinn rétta höfund lesa upp söguna af því hann er ekki afi og enginn segir sögur eins og afi.
Þegar þú tókst upp á því að gefa mér kindina Slaufugránu í jólagjöf var það besta gjöf sem ég hef fengið og á hverju vori hringdir þú til að leyfa mér að skíra lömbin hennar, ég hlakkaði alltaf til þess. Ég á margar góðar minningar um þig afi minn og allan þann tíma sem við eyddum saman, alltaf þegar ég minnist þín fylgja endurminningunum hlýja og hamingja. Þú varst uppátækjasamur og hafðir lausn á flestu, góður og fróður afi og ég mun sakna þín mjög. Vertu sæll afi minn og guð geymi þig. Elsku amma ég bið Guð að hugga þig og styrkja.
Kristín Áskelsdóttir.
Margar lífsreglurnar lagði hann okkur. Vinna fyrir hlutunum. Standa sig í vinnu. Vera fljótur að vinna, fljótur að éta og fljótur að sk... jah þið lesið á milli línanna. Upptalningin er endalaus, allt sem hann kenndi okkur. Allt sem við upplifðum með honum, kristaltærar minningar sem gætu fyllt heilu bindin. Við látum þessa upptalningu nægja í bili. Það er sárt að horfa á eftir afa.
Elsku afi, nú ert þú horfinn á fund forfeðra þinna. Á fund kærra ástvina. Hvíldu í friði. Takk fyrir allt.
Elsku amma, Guð veri með þér.
Óli, Dagný og Fjóla
Mikaelsbörn.
Við viljum ekki sleppa,
við viljum hafa að eilífu.
Við viljum ekki sleppa,
þá þurfum við aldrei að gleyma.
Því við eigum minningar,
minningar um gleði og hamingju,
minningar um grát og sorgir.
En það dýrmætasta sem við eigum
eru minningarnar um afa.
Minningarnar um þann mann
sem við virtum og dáðum.
Minningarnar sem að eilífu eiga eftir að lifa.
Þegar við fengum símtalið að heiman um að afi hefði fallið frá byrjuðu minningar að streyma fram, minningar frá Brekku, frá Keldudal, frá Fjarðargötu og frá Bekkugötu. Endalausar minningar um visku og fróðleik.
Það var alveg sama hvað var verið að gera, afi hafði alltaf þá guðsgjöf að geta deilt fróðleik.
Það var nú ekki sjaldan, þegar við vorum öll samankomin í Keldudal á okkar árlega ættarmóti, að afi og Geiri heitinn frændi löbbuðu með okkur um dalinn og spjölluðu um staðhætti og gamla tíma og það skipti ekki máli hvort það voru fullorðnir eða börn, allir hlustuðu og reyndu að ná sem flestu og muna sem flest. Það sama var upp á teningnum þegar kom að Brekku, afi hafði alltaf tíma til að segja okkur krökkunum frá fjöllunum, steinunum, lækjunum og sögu alls í kring.
Afi kenndi okkur mjög snemma að bera virðingu fyrir öllu í náttúrunni, sérstaklega fyrir dýrum og plöntum, og höfum við aldrei kynnst manni sem vissi eins mikið um náttúruna og afi gerði.
Afi, það er svo sárt að geta ekki komið og verið á landinu núna, að geta ekki fylgt þér til þinnar hinstu hvílu. Við erum svo þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman í sumar, fyrir að hafa getað farið fyrir nes saman og geta spjallað um daginn og veginn.
Elsku amma, allar okkar hugsanir eru hjá þér á þessum tímum og þú veist að við erum alltaf hjá þér.
Hvíl í friði elsku afi.
Ásta, Hugrún og fjölskyldur.
Elsku amma mín, eins og alltaf stendur þú þig eins og hetja þó byrðin sé þung, Guð veiti þér styrk í þinni miklu sorg.
Ástar- og saknaðarkveðjur,
Kristín Ragna Höskuldsdóttir og fjöskylda.
Það sækja á mig ótal minningar þegar ég hugsa til þín afi. Góðar minningar þegar við lásum saman brandarabókina, fórum í ótal veiðiferðir, fórum reglulega í göngutúra til að tína steina, heyskapinn á Brekku. Ég var hjá ykkur ömmu hver jól og áramót þar til 1998, maður hlakkaði alltaf til að koma til ykkar í sveitina og vildi alltaf vera lengur hjá ykkur. Þú varst alltaf með góðar sögur og alltaf tilbúinn til að gera allt til að gleðja okkur. Elsku amma mín og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur innilega samúð mína.
Aron Þór.
Kæri afi við söknum þín öll. Það var gaman að lesa með þér og skoða allar bækurnar þínar, fara með þér í veiðiferðir. Það var gott að heimsækja ykkur ömmu og gista hjá ykkur. Þakka þér fyrir að vera svona góður afi.
Halldóra.