HAUKAR leika til úrslita um deildabikarinn í handknattleik, bæði í karla- og kvennaflokki, en úrslitaleikirnir fara fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í kvöld.
HAUKAR leika til úrslita um deildabikarinn í handknattleik, bæði í karla- og kvennaflokki, en úrslitaleikirnir fara fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í kvöld. Haukar lögðu Val og Akureyri sigraði FH í undanúrslitunum í karlaflokki í gær og Haukar mæta því Akureyri klukkan 18. Í úrslitaleik kvenna eigast við Haukar og Fram klukkan 20 en Fram lagði Stjörnuna í gærkvöld og Haukum var dæmdur sigur gegn Val. | Íþróttir