Séra Sigríður Óladóttir prestur á Hólmavík sem þjónar í einu víðfeðmasta prestakalli landsins messaði í fjórum kirkjum um hátíðarnar. Sungnar voru messur á Hólmavík, Drangsnesi, Kollafjarðarnesi og Óspakseyri.
Séra Sigríður Óladóttir prestur á Hólmavík sem þjónar í einu víðfeðmasta prestakalli landsins messaði í fjórum kirkjum um hátíðarnar. Sungnar voru messur á Hólmavík, Drangsnesi, Kollafjarðarnesi og Óspakseyri. Ófært er hins vegar norður í Árneshrepp þar sem til stóð að messa um hátíðarnar. „Nei, ég fer ekki til messu á vélsleða. Það er ekki nóg að presturinn komist, það þarf líka að vera fært innansveitar,“ segir sr. Sigríður.