Miles Davis
Miles Davis
Síðustu tónleikar ársins hjá Bebopfélagi Reykjavíkur verða í kvöld í djasskjallara Kaffi Kúltúre við Hverfisgötu.
Síðustu tónleikar ársins hjá Bebopfélagi Reykjavíkur verða í kvöld í djasskjallara Kaffi Kúltúre við Hverfisgötu. Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá útkomu plötunnar Kind of Blue með Miles Davis, sem margir djassáhugamenn telja eina bestu djassplötu allra tíma, munu félagar í Bebopklúbbnum flytja tónlistina af plötunni í heild. Margir af bestu djassleikurum þjóðarinnar leiða saman hesta sína að þessu sinni, skv. tilkynningu, og verður án efa líf í tuskunum. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og standa frameftir. Aðgangseyrir er 1.000 kr.