ALLT stefnir í að unnið verði úr rúmlega 5.100 tonnum af hráefni í landvinnslu Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal og á Ísafirði á þessu ári.

ALLT stefnir í að unnið verði úr rúmlega 5.100 tonnum af hráefni í landvinnslu Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal og á Ísafirði á þessu ári. Í fréttatilkynningu frá LÍÚ segir að athygli veki að fimmtungur hráefnisins kemur úr þorskeldi, sem fyrirtækið hefur stundað undanfarin ár. Hlutfallið hefur að sögn Einars Vals Kristjánssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, aldrei verið hærra.

„Þetta er að sjálfsögðu ánægjulegur áfangi því eldisþorskurinn hefur staðið undir fimmta hverjum vinnudegi hjá okkur,“ segir Einar Valur. Fara þurfi a.m.k. áratug aftur í tímann til að finna dæmi um meira magn hráefnis til vinnslunnar en á þessu ári.