— Morgunblaðið/Golli
SUMIR fengu ranga stærð af flík og vildu því skipta í rétta stærð. Aðrir fengu eitthvað sem þeim hugnaðist ekki og vildu skipta á því og einhverju allt öðru.
SUMIR fengu ranga stærð af flík og vildu því skipta í rétta stærð. Aðrir fengu eitthvað sem þeim hugnaðist ekki og vildu skipta á því og einhverju allt öðru. Enn aðrir vildu einfaldlega skila því sem í pakkanum hafði verið og fá inneignarnótu til að geta síðar keypt sér eitthvað af allt öðrum toga. Allt þetta fólk átti það sameiginlegt að eyða löngum stundum í biðröð við verslun Hagkaupa í Kringlunni í gær. Talsvert margt fólk var í verslunarmiðstöðinni í ofangreindum erindagjörðum eða einfaldlega að spá í mannlífið.