MIKIL vinna er að breyta verði á vöru og þjónustu um áramót, en þá hækkar virðisaukaskattur úr 24,5% í 25,5%.
MIKIL vinna er að breyta verði á vöru og þjónustu um áramót, en þá hækkar virðisaukaskattur úr 24,5% í 25,5%. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir óhjákvæmilegt að fyrstu vikurnar í janúar verði munur á hilluverði og kassaverði.
Andrés segir eðlilegt að verslanir birti yfirlýsingu á áberandi stað en vegna skamms fyrirvara verði munur á verði meðan verið er að ljúka verðbreytingum.
2