<strong>Álag</strong> Miklar annir eru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Álag Miklar annir eru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. — Morgunblaðið/Júlíus
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.

Eftir Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

„AÐALMÁLIÐ er að það er kergja á meðal lögreglumanna með að það sé verið að fegra ástandið í fjölmiðlum, með því til dæmis að halda því fram að fækkun lögreglumanna sé minni en hún er eða jafnvel engin,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, og vísar í gögn Ríkislögreglustjóra.

Að sögn Snorra kemur þar fram að árið 2005 hafi 345 lögregluþjónar verið við störf í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi en 333 árið á eftir. Árið 2007 hafi umdæmin þrjú verið sameinuð og talan lækkað í 332 en svo fallið í 298 í fyrra. Nú séu 315 lögregluþjónar við störf á höfuðborgarsvæðinu og áætlað að þeir verði 304 á næsta ári.

„Svo kemur fram að lögreglumönnum sem lokið hafi lögregluskólanum og starfi á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki fækkað frá því embættin voru sameinuð. Þetta er einfaldlega ekki rétt,“ segir Snorri og vísar til greinar í Morgunblaðinu 22. desember síðastliðinn þar sem rætt var við Stefán Eiríksson, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.

Fram kom í umræddri grein að í ár og á næsta ári verða jafn margir fullmenntaðir lögreglumenn að störfum á höfuðborgarsvæðinu eða 291, en voru 317 í fyrra og 278 árið áður. Þá var haft eftir Stefáni að hafa þyrfti í huga að þótt lögreglunemum hefði fækkað úr 36 árið 2007 í að líkindum engan á næsta ári hefðu þeir aðeins starfað hluta ársins og ekki verið fullþjálfaðir.

Jafnframt stafi fækkunin sem orðið hafi í lögregluliðinu meðal annars af því að yfirmönnum fækki þar sem ekki sé ráðið í stöður þeirra sem láti af störfum.

Snorri er þessu ósammála.

„Ef litið er í tölur frá Ríkislögreglustjóra hefur lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu fækkað um 47 frá árinu 2005. Fækkunin er minni ef miðað við tímabilið 2007 til 2008.“

– Áttu við að samanburður á milli 2007 og 2008 gefi ekki rétta mynd?

„Já. Það verður að skoða tölurnar frá því fyrir sameiningu til að gera sér grein fyrir heildarstöðunni.“

Heldur ekki í við fólksfjölgun

– Hvað viltu segja um þessa fækkun í ljósi fólksfjölgunar í landinu?

„Lögreglumönnum hefur ekki fjölgað í takt við fólksfjölgun í landinu, hvort sem hún er tímabundin eða ótímabundin. Ef við horfum til aðflutta vinnuaflsins hélt fjölgunin engan veginn í við fólksfjölgun.

Við óttumst þessa þróun og að það hafi orðið fækkun í lögreglu í landinu eins og berlega kemur fram í tölum í ársskýrslum Ríkislögreglustjóra. Við óttumst að sú fækkun endurspeglist í afbrotatölfræðinni.“

– Hvað áttu við?

„Þá á ég við að það hefur orðið gríðarleg fjölgun í afbrotum, hegningarlagabrotum og öðrum brotum. Það er alveg ljóst að það er ekki hægt að halda uppi sýnilegu eftirliti með lögreglu nema með lögreglumönnum. Ef þeim fækkar dregur úr sýnileika lögreglu í hlutfalli við það.“

– Telurðu að Stefán sé að reyna að fegra ástandið?

„Já, ástandið er að okkar mati slæmt og ég tel og vil meina að Stefán sé ekki að segja hlutina eins og þeir eru í raun og veru. Það hefur orðið fækkun.“

– Af hverju ætti hann að gera það?

„Þú verður að spyrja hann að því. Ég get ekki skýrt það fyrir hann. Það er óánægja í röðum okkar lögreglumanna með fækkunina. Menn eru undir miklu álagi og finna það á sér í vinnu að það er mikið og hefur verið að aukast.“

– Skynjið þið áhyggjur hjá fólki?

„Já, við skynjum þær áhyggjur þar sem við komum og ræðum við fólk. Þetta er það sem við erum að heyra í stjórn Landssambands lögreglumanna að lögreglumenn eru óánægðir með að menn skuli vera að fegra ástandið, að ástandið sé ekki jafn gott eins og yfirmenn vilja vera láta.“

Á að ráða í lausar stöður

– Hvað með þau ummæli Stefáns að hluta fækkunarinnar megi skýra með því að ekki sé ráðið í stöður yfirmanna. Teljið þið einnig að þar sé ekki verið að segja alla söguna?

„Já, það er mikil óánægja á meðal lögreglumanna með það. Það kemur fram í því að þeir telja að þegar einhver hættir í liðinu eigi að ráða annan í hans stað og að það eigi ekki að nota þá fækkun til að ná fram peningalegum sparnaði. Það á við um yfirmenn jafnt sem undirmenn.

Ef breyta á skipulagi í lögreglunni eins og dómsmálaráðherra hefur gefið til kynna ætti að bregðast við fækkun yfirmanna með því að ráða fleiri almenna lögreglumenn í grunngæslu lögreglunnar.“