„Það er allt við það sama, og ég get alveg eins reiknað með því að verða þrjá mánuði til viðbótar að jafna mig alveg,“ sagði Guðrún Sóley Gunnarsdóttir , landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Djurgården í Svíþjóð, við Morgunblaðið í gær.
„Það er allt við það sama, og ég get alveg eins reiknað með því að verða þrjá mánuði til viðbótar að jafna mig alveg,“ sagði Guðrún Sóley Gunnarsdóttir , landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Djurgården í Svíþjóð, við Morgunblaðið í gær. Hún er enn að jafna sig af höfuðhögginu sem hún fékk í leik Íslands og Frakklands í úrslitakeppni EM í Finnlandi í lok ágúst. Guðrún hefur verið frá æfingum og keppni síðan í september.