* Teiti ein er fengið hefur nafnið „Millennium Party“ verður haldin á skemmtistaðnum NASA annað kvöld og verður nýju ári fagnað með því að dansa við tónlist frá aldamótum og þar um kring, árunum 1999-2001.
* Teiti ein er fengið hefur nafnið „Millennium Party“ verður haldin á skemmtistaðnum NASA annað kvöld og verður nýju ári fagnað með því að dansa við tónlist frá aldamótum og þar um kring, árunum 1999-2001. Það eru skífuþeytararnir DJ Kiki-Ow og DJ Curver sem halda uppi stuðinu og mynda tvíeykið No Limits Ltd. Tvíeyki þetta hefur hin síðustu ár staðið fyrir skemmtunum með tónlist frá síðasta áratug liðinnar aldar, á hinum ágæta NASA. Mikið verður um dýrðir, sjálflýsandi stangir og ljósaspil. Miðasala fer fram á midi.is en einnig í Spútnik á Laugavegi og í Kringlunni.