ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til aksturs til að minnast þeirra þriggja manna sem létust í bílslysi á Hafnarfjarðarvegi við Arnarneshæð hinn 18. desember síðastliðinn.

ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til aksturs til að minnast þeirra þriggja manna sem létust í bílslysi á Hafnarfjarðarvegi við Arnarneshæð hinn 18. desember síðastliðinn.

Leigubílstjórar hafa tekið sig saman um að aka stuttan hring til að minnast þeirra Sæmundar Sæmundssonar, Björns Björnssonar og Hrafnkels Kristjánssonar. Leigubílstjórarnir benda á að þeim sem vilja sé velkomið að taka þátt í þessum akstri.

Komið verður saman fyrir utan Skeljung á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði kl. 19.30 í kvöld og lagt af stað kl. 20. Ekið verður að slysstað og munu bílstjórarnir staldra þar við og kveikja á kertum og hafa einnar mínútu þögn.