Ekki hirt Borgarbúar þurfa sjálfir að koma jólatrjánum í Sorpu.
Ekki hirt Borgarbúar þurfa sjálfir að koma jólatrjánum í Sorpu. — Morgunblaðið/Golli
SORPHIRÐA Reykjavíkur mun ekki hirða jólatré borgarbúa eins og fyrri ár. Íbúum gefst þess í staðinn kostur á að skila trjánum sjálfir til Endurvinnslustöðvar SORPU sér að kostnaðarlausu.

SORPHIRÐA Reykjavíkur mun ekki hirða jólatré borgarbúa eins og fyrri ár. Íbúum gefst þess í staðinn kostur á að skila trjánum sjálfir til Endurvinnslustöðvar SORPU sér að kostnaðarlausu.

Íþróttafélögin í Reykjavík munu einnig á nýju ári bjóða þá þjónustu að hirða jólatrén að hátíðunum loknum. Íþróttafélögin sem hyggjast nota verkefnið til fjáröflunar starfsemi sinnar munu þá fara um hverfi borgarinnar með kerrur og bjóða fólki að flytja trén í endurvinnslu gegn gjaldi.