Árið 2010 hefst með látum en X-ið 977 stendur fyrir tónleikum í Afleggjararöð sinni á Sódómu Reykjavík 1. janúar.

Árið 2010 hefst með látum en X-ið 977 stendur fyrir tónleikum í Afleggjararöð sinni á Sódómu Reykjavík 1. janúar. Þar verða drengirnir í Ensími, með Hrafn Thoroddsen í broddi fylkingar, helsta númerið en þeim til halds og trausts verða Cliff Clavin og Cosmic Call. Hin goðsagnakennda Ensími lék af plötu sinni Kafbátamúsík fyrir fullu húsi á NASA í sumar og komust þá færri að en vildu. Miðasala er hafin á midi.is og er miðaverð 1.800 kr.